
Teater
Karíus og Baktus
Karíus og Baktus Tanntröllin Karíus og Baktus lifa sannkölluðu sældarlífi í munninum á drengnum Jens. Enda notar hann tannburstann lítið sem ekkert og vill helst gæða sér á allskyns sætindum sem Karíus og Baktus kunna svo sannarlega að meta. Félagarnir hreiðra um sig í tönnunum og ræða framtíðardrauma um byggingaframkvæmdir í munninum. En þegar þeir gerast of aðgangsharðir verður Jens að fara til tannlæknis sem setur framkvæmdirnar í uppnám og félagarnir þurfa að leita á nýjar slóðir. Karíus og Baktus er sígilt ævintýri eftir Thorbjörn Egner. Sagan kom fyrst út á bók árið 1949 og síðan þá hafa þessir litlu prakkarar notið mikilla vinsælda meðal barna víða um heiminn. Nú má sjá þessa sígildu