
Trio JAM María Qing Sigríðardóttir, sellóleikari Alice Compagnon, fiðluleikari og söngkona Jonathan Hanke, píanóleikari Á tónleikunum býður tríóið áheyrendum upp á fjölbreytta dagskrá sígildrar tónlistar þar sem leitað er út fyrir klassískar hefðir og skapað sannkallað kaffihúsaandrúmsloft. Meðal verka eru Árstíðir Piazzolla, þar sem hinn svipmikli argentínski tangó mætir sígildri tónlist og frelsi til spuna. Þýska tónskáldið Florian Willeitner sameinar hins vegar hefðbundið form kammertónlistar við líflegan og grípandi takt, djass og samtímatónlist í Píanótríói nr. 2. Titilverk tónleikanna er Kaffi Músík eftir Paul Schoenfield, gamansamt og líflegt verk sem fangar andrúmsloft iðandi götukaf