
Tónlistarmaðurinn síglaði - og vinsæli Jón Jónsson verður gestur nafna síns Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 15. október, 2026 Það er óhætt að segja að Jóni Ragnari Jónssyni sé ýmislegt til lista lagt. Í Versló var ekki þverfótað fyrr kappanum sem brilleraði í söngleikjauppfærslum skólans. Hann lék knattspyrnu með gullaldarliði FH í knattspyrnu og varð Íslandsmeistari með liðinu. Hans besta ár var þó auðvitað þegar hann lék sem lánsmaður með Þrótti Reykjavík. Jón stundaði hagfræðinám í Bandaríkjunum og fór að koma fram með eigið efni sem tryggði honum erlendan plötusamning. Frægðarsól hans hefur engu að síður skinið skærast á Íslandi. Jón lofar fjöri enda ,,Ice