
Teater
Jón Hjartarson les Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í þremur hlutum
Jón Hjartarson les Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson á þremur laugardögum í desember í Hannesarholti. Aðventa er ein þekktasta skáldsaga Gunnars og ein af gersemum íslenskra bókmennta. Sagan byggir á svaðilför Fjalla-Bensa, hundinum Leó og forystusauðnum Eitil í leit að eftirlegukindum á Mývatnsöræfum árið 1925. Bókin kom út 1936, fyrst á dönsku, en hún hefur verið þýdd á yfir 20 tungumál. Jón Hjartarson, leikari, hefur átt langan og farsælan feril á sviði, leikið yfir 80 hlutverk með Leikfélagi Reykjavíkur, jafnframt komið fram í kvikmyndum, sjónvarps- og útvarpsverkum. Upplesturinn fer fram í Hljóðbergi, sal Hannesarholts, 5., 12., og 19. desember kl.11:30. Hægt er að kaupa miða á allar sýningarnar á 5000kr eða á staka sýningu á 2000kr.