
Teater
Jólin á suðupunkti
Sýningin sem gerði allt vitlaust í fyrra snýr aftur í Þjóðleikhúskjallarann! Nú mæta ofurkonurnar í Raddbandinu aftur - stressaðri, þreyttari og með enn fleiri bolta á lofti. Við fylgjumst með ungum mæðrum undirbúa hin fullkomnu jól, án þess þó að gefa nokkuð eftir í móðurhlutverkinu. Ná þær að töfra fram heilög jól í tæka tíð eða tryllast þær á sjálfsafgreiðslukassanum í Bónus? Leikkonur og höfundar verksins, Auður Finnbogadóttir, Rakel Björk Björnsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir, fara á kostum í sýningu sem byggð er á sönnum atburðum sem hefðu líklega átt að vera einkamál. Stórskemmtileg kvöldstund þar sem tónlist, leikhús og dans renna saman í eina allsherjar jólasprengju! Raddbandið va