
KlassisktTeater
Jólatónleikar Sinfóníunnar - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru sannkölluð hátíðarstund fyrir jólabörn á öllum aldri. Að vanda ríkir hátíðlegur blær í Eldborg þar sem ungir hljóðfæraleikarar og ballettdansarar ásamt einsöngvurum og kórum færa gestum glæsilega og fjölbreytta dagskrá. Sígildar jólaperlur fléttast saman við klassísk ævintýri sem koma öllum í hátíðarskap. Maxímús Músíkús setur upp rauðu húfuna og trúðurinn Barbara flytur sína alkunnu og hlýju jólahugleiðingu sem snertir streng í hverju hjarta. Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli. Hljómsveitarstjóri Nicholas Swensen Kynnir Trúðurinn Bar