Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur - Sígildir sunnudagar
Klassiskt

Jólatónleikar Kammersveitar Reykjavíkur - Sígildir sunnudagar

Á hinum árlegu jólatónleikum Kammersveitar Reykjavíkur er barokktónlist og hátíðleg stemning jafnan í forgrunni.

Að þessu sinni fær tónlist eftir hinn þýska Georg Philipp Telemann sérstakan heiðurssess í efnisskránni. Hann er eitt afkastamesta tónskáld barokktímans. Anna Elísabet Sigurðardóttir leikur einleik í víólukonserti Telemanns og Zachary Silberschlag leikur einleik í trompetkonserti hans.

Auk þess eru á efnisskrá verk eftir vini og samstarfsmenn Telemanns. Carl Philip Emanuel Bach var guðsonur tónskáldsins. Á tónleikunum verður leikin ein af strengjasinfóníum Bach sem hann samdi skömmu eftir að hann hafði tekið við sem eftirmaður Telemanns í Hamborg. Christoph Graupner kynntist Georg Philipp þegar þeir voru báðir við nám og störf í Leipzig. Graupner starfaði síðar við hirðina í Darmstadt og er Tríó sónatan samin þar. Johann Georg Pisendel var konsertmeistari um tíma í Collegium Musicum í Leipzig, tónlistarhópi sem Telemann stofnaði. Pisendel varð síðar mjög áhrifamikill fiðluleikari og tónskáld og starfaði mest allan sinn feril sem konsertmeistari við hljómsveit hirðarinnar í Dresden. Tónleikunum lýkur á hans þekktasta verki, Fantasíu.

Efnisskrá Christoph Graupner: Tríó-sónata í h-moll GWV 219 fyrir flautu, fiðlu og fylgirödd

Georg Philipp Telemann: Konsert fyrir víólu og hljómsveit í G-dúr TWV 51:G9. Einleikari: Anna Elísabet Sigurðardóttir

Carl Philipp Emmanuel Bach. Sinfónía fyrir strengi í C-dúr Wg. 182/3

Georg Philipp Telemann: Konsert fyrir trompet og hljómsveit í D-dúr TWV 51:D7. Einleikari: Zachary Silberschlag

Johann Georg Pisendel: Fantasie. „Imitation des caractères de la danse“(1687–1755) Loure Rigaudon Canarie Bourée Musette: Lentement Passepied: Gay, accelerando poco a poco Polonaise: Majesteusement Concertino: Presto

Tónleikarnir eru um klukkustund, án hlés.

Ókeypis aðgangur fyrir 12 ára og yngri.

Se på Harpas webbplats →

Datum

Söndag 6 Dec

Tid

16:00

Venue

Harpa

Pris

2.500 - 4.500 kr

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík