
Experimentellt
Jólatónleikar Bertu og Svans í Hannesarholti
Jólatónleikar Bertu og Svans í Hannesarholti Söngkonan Berta Dröfn Ómarsdóttir og gítarleikarinn Svanur Vilbergsson bjóða til notalegrar jólastundar í Hannesarholti laugardaginn 5. desember. Berta er mikið jólabarn og hefur í gegnum árin tekist að draga Svan æ lengra inn í jólastemninguna. Afraksturinn er fjölbreytt og skemmtileg efnisskrá þar sem bæði þekkt og minna þekkt jólalög fá að hljóma. Á tónleikunum verður ferðast milli landa og tungumála og meðal annars flutt ítölsk, spænsk og ensk jólalög, auk kunnuglegra perla á borð við Hvít jól og Once Upon a December. Berta og Svanur hafa starfað saman um árabil og leggja sig fram við að finna lög sem henta vel fyrir rödd og gítar –