
TeaterKlassiskt
Jólatímavélin - ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur
„Svona’ eru jólin“, orti skáldið en um hvaða jól var ort? Jólin sem langamma og langafi upplifðu voru allt öðruvísi en jólin í dag og svo eru hátíðarhöldin fjölbreytt um allan heiminn. Jólatímavélin er ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur þar sem tónlist liðinna jóla og skemmtilegar sögur fléttast saman. Tilvalin leið til að vekja áhuga ungra huga á fjölbreytileika tónlistarinnar en á tónleikunum fáum við m.a. að heyra klassík, þjóðlagatónlist, gömul dægurlög og ferskar útsetningar af nýrri tónlist. Kvartettinn BAST er skipaður einvalaliði íslenskra söngvara sem mun leiða alla fjölskylduna í hljómfagurt tímaferðalag um jól, nú og fyrr; í torfbæjum er leikið á langspil við kertaljós