
KlassisktFri entré
Jólastund fjölskyldunnar | Fjölskyldudagskrá Hörpu
Jólastund fjölskyldunnar Staður: Hörpuhorn í Hörpu Dagsetning: Laugardagur 19. desember Tími: Kl. 11:00–14:00 Aldur: Allur aldur Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða Opið hús: Gestir geta komið og farið að vild Harpa býður börnum og fjölskyldum í hlýlega og notalega jólastund í Hörpuhorni. Boðið verður upp á jólatónlist, jólaföndur og dansað verður í kringum jólatréð. Auðvitað lætur Maxímús Músíkús sig ekki vanta og mætir í jólaskapi – og hver veit nema jólasveinninn kíki líka! Opið hús er frá kl. 11:00–14:00 og gestir geta komið og farið þegar þeim hentar. Komið og eigið notalega jólastund saman í Hörpu!