Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Jólanótt Scrooge
Teater

Jólanótt Scrooge

Töfrandi jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna Hvað þarf til að bræða hjarta manns sem hefur gleymt því hvernig á að elska? Í Lundúnum fyrir rúmri öld býr Ebenezer Scrooge, ríkur en afskaplega nískur maður sem hefur litla þolinmæði fyrir jólunum og enn minni fyrir fólkinu í kringum sig. En á aðfangadagskvöld tekur líf hans óvænta stefnu. Þegar klukkan slær tólf hefst undarleg og ævintýraleg ferð þar sem fortíð, nútíð og framtíð leiða Scrooge á vit minninga, gleði og þess sem raunverulega skiptir máli. Jólanótt Scrooge er ný, íslensk leikgerð Níels Thibaud Girerd á hinni sígildu jólasögu Charles Dickens, A Christmas Carol. Hér lifnar sagan við með leik, söng, tónlist, húmor og töfrum í hlýlegri leiksýningu fyrir alla fjölskylduna. Saga um einmanaleika og vináttu, missi og von — og þá dásamlegu staðreynd að það er aldrei of seint að breytast. Sýningin er um 50 mínútur að lengd. Frumsýnt 5. desember 2026 í Salnum í Kópavogi.

Se på Salurinns webbplats →

Datum

Lördag 5 Dec

Tid

12:00

Pris

4.900 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík