Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Jólakötturinn & dularfulla kistan
Teater

Jólakötturinn & dularfulla kistan

JÓLAKÖTTURINN & DULARFULLA KISTAN

Töfrandi barna- og fjölskyldusýning þar sem börnin taka virkan þátt í að bjarga jólunum!

Jólakötturinn rambar óvænt inn í Salinn í Kópavogi og þvert á þjóðtrú reynist hann hið besta skinn, þó svo að hann sé vissulega mikill prakkari.

Fljótlega sjá áhorfendur að Jólakötturinn er ekki í Salnum af eigin vilja. Hann hefur verið sendur af sjálfri Grýlu í óvænt og krefjandi ferðalag til að bjarga jólunum í Grýluhelli.

Í ljós kemur að Jólakötturinn hefur framið prakkarastrik í Grýluhelli með þeim afleiðingum að jólagleðin hverfur og jólunum því aflýst.

Verkefnið virðist vonlaust, en með hjálp barnanna í salnum leggur Jólakötturinn af stað í ævintýri fullt af töfrum, húmor og prakkarastrikum.

En tekst þeim að bjarga jólunum? Jólakötturinn & dularfulla kistan er gagnvirk fjölskyldusýning þar sem börnin eru ekki bara áhorfendur heldur verða þau hluti af ævintýrinu og hjálpa Jólakettinum að leysa verkefnið.

Leikarar í sýningunni eru tveir ásamt nokkrum rauðklæddum og óvæntum gestum.

Se på Salurinns webbplats →

Datum

Lördag 28 Nov

Tid

11:00

Pris

4.900 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík