
Jazzhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 25. – 30. ágúst 2026. Boðið verður upp á glæsilega sex daga tónleikadagskrá þar sem jazz og spunatónlist verður í forgrunni og frábært listafólk frá Evrópu og Íslandi kemur fram. Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar og veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika. Kvöldpassi kostar 8.990 kr. en við bjóðum upp á afsláttarverð, 6.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 9.990 kr. Fimmtudagurinn 27. ágúst | Harpa, Norðurljós 19:00 – Crossing Borders – Útgáfutónleikar (IS) 20:00 – Tom Sochas Trio (UK/FR) 21:00 – Matti Klein Soul Trio (DE)