
Hljómsveit Ingimars Eydal var um árabil ein vinsælasta danshljómsveit landsins auk þess að gefa út hljómplötur sem báru hróður hljómsveitarinnar langt út fyrir bækistöðvar hljómsveitarinnar á Akureyri. Spilagleði og vandvirkni einkenndi hljómsveitina og frábærir söngvarar voru ávallt í framlínunni á meðan hún starfaði. Þar má nefna Vilhjálm Vilhjálmsson, Þorvald Halldórsson, Bjarka Tryggvason, Helenu Eyjólfsdóttur, Ingu Eydal og Grím Sigurðsson sem dæmi. Auk þess skal sérstaklega nefna Finn Eydal en klarinett- og saxófónleikur hans vakti verðskuldaða athygli. Bræðurnir Eydal höfðu áður starfað saman í hinum vinsæla Atlantic kvartett sem gaf út hljómplötur sem nutu vinsælda. Söngvararnir Sigr