
Experimentellt
IN CAELO ET IN TERRA
Kór Hallgrímskirkju býður til tónleika í tilefni af útkomu fyrstu breiðskífu kórsins með nýrri íslenskri kirkjutónlist, In caelo et in terra. Diskurinn er gefinn út af Hallgrímskirkju á 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar og 5 ára afmæli Kórs Hallgrímskirkju. Kór Hallgrímskirkju hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á nýsköpun og voru öll verkin á plötunni pöntuð og frumflutt af kórnum. Þau eru samin við kirkjulega texta á latínu, texta sem eiga sér langa sögu og hafa verið túlkaðir á ótal vegu í tónum. Hér fá tónskáld samtímans tækifæri til að nálgast þessa texta frá nýju sjónarhorni og skapa eigin hljóðheim í kringum orð sem hafa fylgt kirkjunni um aldir. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.