
Övrigt
IA x Gísli Gunnarsson: Úr Öskunni - Live in Grindavík
IA x Gísli Gunnarsson: Úr Öskunni - Live in Grindavík - Frumsýning Sem hluti af Iceland Airwaves 2026 kynna Airwaves og Reykjavík Music City, í samstarfi við By Norse Music, sérstaka frumsýningu á "Úr Öskunni – Live in Grindavík" – tónleikamyndband frá árinu 2025 sem fangar einstaka tónleika í kirkjunni í Grindavík, bænum sem þurfti að yfirgefa í kjölfar eldsumbrota. Tónleikarnir, sem fóru upphaflega fram á Iceland Airwaves 2025 færðu tónlistina aftur til Grindavíkur og sköpuðu tækifæri fyrir fólk með tengsl við bæinn til að koma saman á þeim stað sem það hafði neyðst til að yfirgefa. „Hugmyndin að baki tónleikunum var að skapa viðburð þar sem Grindvíkingar gætu komið saman heima fyrir, í