
Klassiskt
Í nýjum fötum
Kyrja tekur hið kunnuglega og klassíska og sýnir það í nýju ljósi. Gamansöm lög verða myrk, elektrópopp verður að Gregorískum sálmi og landslag breytist í tónlist. Í höndum Kyrju er tónlist Bjarkar, Sigur Rósar, Júníusar Meyvant, Bubba Morthens, sem og annarra, endursköpuð og aðlöguð að eldri sönghefðum. Kyrja er íslenskur sönghópur, stofnaður 2022. Meðlimir Kyrju eru allir reynslumiklir atvinnusöngvarar sem vilja víkka út hugmyndir fólks um kórtónlist. Kyrja reið á vaðið með Nótt eftir Árna Þorsteinsson og nýrri og áhrifamikilli útsetningu af Röngum manni eftir Jónas Sigurðsson, en markmið hópsins er meðal annars að setja vel þekkt lög í nýjan búning. Annað markmið hóps