
Í grænni lautu - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Í grænni lautu er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Listasafns Íslands og Grasagarðs Reykjavíkur. Þar eiga þjóðsögur, tónlist, myndlist og náttúran stefnumót. Við förum í árstíðatengt ferðlag þar sem tónlistin vekur allt að vori og listaverkin leika sér að litagleði sumarsins, fjúka með laufum haustsins og falla í djúpan dvala vetrarins. Ólafur Egill Egilsson er sögumaður á þessum heillandi og lærdómsríku fjölskyldutónleikum og leiðir tónleikagesti í gegnum litróf árs tíðanna þar sem tónlistin og grasafræðin sameinast myndlistinni sem varpað verður upp á meðan tónleikunum stendur. Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés.
Hljómsveitarstjóri Hjörtur Páll Eggertsson
Sögumaður og kynnir Ólafur Egill Ólafsson
Efnisskrá Antonio Vivaldi Úr árstíðunum Nikolaj Rimskíj-Korsakov Býflugan Ingi T. Lárusson Ó, blessuð vertu sumarsól Miley Cyrus Blóm Vaughan Williams Geitungarnir, forleikur Joseph Kosma Haustlauf Enskt lag Frost er úti fuglinn minn Íslenskt þjóðlag Krummi svaf í klettagjá