
Skynvin á Menningarnótt Flestir ungar eru nú flognir úr hreiðrum sínum á vit ævintýranna - en hvað með mannfólkið, má það núna hreiðra um sig inn í haustið? Á Menningarnótt býður ÞYKJÓ hönnunarteymi börnum og fjölskyldum þeirra á innsetninguna Hreiðrum okkur inni í Stemmu á jarðhæð Hörpu. Hér er gott að halla sér aftur með góða bók eða loka augunum og njóta hljóðinnsetningar eftir sóleyju þar sem hrossagaukur dýfir sér og lóa syngur dirrindí.