
Hip-hop
Howie B & Hiraki Sawa: 3 Sticks ásamt Tech x Copper
Howie B & Hiraki Sawa: 3 Sticks ásamt Tech x Copper Hinn goðsagnakenndi breski tónlistarmaður og upptökustjóri Howie B heldur tónleika í Gamla Bíó þann 16. október næstkomandi. Honum til halds og trausts verður Japanski myndlistarmaðurinn Hiraki Sawa sem stýrir lifandi myndefni á tónleikunum. Saman kalla þeir sig 3 Sticks. Á tónleikunum spila þeir nýtt efni í bland við eldri lög Howie B og auk þess er mikið lagt upp úr lifandi spuna. Tónleikarnir verða einstakt hljóð- og sjónarspil þar sem myndbandalist Hiraki bregst í rauntíma við tónlist Howie á sviðinu. Raftónlistartvíeykið Tech x Copper opnar kvöldið og flytur nýja tónlist þar sem lifandi slagverk, ambient textúrar og spuni verða í forgr