
Jazz
Hljómsveitin Move Óskar Guðjónsson
Hljómsveitin Move Óskar Guðjónsson Á tónleikunum kemur fram hljómsveit saxófónleikarans Óskar Guðjónssonar, Move þar sem Óskar vildi takast á við sígildasta form jazztónlistar, lúður með píanótríói. Hann stofnaði því kvartettinn MOVE með Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni kontrabassaleikara og Matthíasi M.D. Hemstock trommuleikara. Þeir hafa æft vikulega frá árinu 2017 og leita leiða til að nálgast eigið efni með eigin aðferðum og allri þeirri fjölbreytni sem þeir finna upp á. Fjórmenningarnir eru þekktir í íslensku tónlistarlífi og hafa allir skapað sér sérstöðu með persónulegri nálgun á fjölbreyttustu viðfangsefni. Ekki skortir þar áskoranir, meðal ann