
Teater
Hetjur hafsins
Nýtt og áhrifamikið leikrit eftir Ragnar Bragason – magnþrungin saga um lífsbaráttu og áföll sem mótað hafa kynslóðir Í litlu samfélagi á Vestfjörðum fléttast örlög fjölskyldna saman, mótuð af sjóslysum og missi. Þrátt fyrir brotsjói lífsins blómstra ástin og lífsgleðin – þar til örlagastund rennur upp á ný. Rithöfundurinn Lea leiðir okkur í þorpið þar sem hún ólst upp, aftur til sjöunda áratugarins, þegar hún var lítil stelpa og vinkonurnar gátu í laumi fylgst með brasi fullorðna fólksins og séð ýmislegt sem kannski enginn átti að sjá. Samskipti fólksins eru mörkuð af hörku og blíðu, söknuði og þrá, harmi og draumum. Yfir þorspslífinu grúfir sársauki fortíðarinnar, í þögninni sem umlykur a