Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Heimshorna á milli - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Klassiskt

Heimshorna á milli - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Barbara Hannigan, blokkflautusnillingurinn Lucie Horsch og hópur hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands bjóða tónleikagestum í spennandi óvissuferð þar sem þjóð- og dægur- tónlist frá ólíkum heimshornum er borin fram. Hér heyrum við frábærar útsetningar Luciano Berio á þjóðlögum ýmissa landa í flutningi Barböru Hannigan, kraftmikla austur-evrópska takta sem urðu Bartók að innblæstri og dillandi suðræna blokkflautu-slagara. Þegar við bætist partítónlist eftir Charlie Parker og þjóðlagaarfur Íslands verða þessir tónleikar að sannkallaðri veislu fyrir augu og eyru með listamönnum á heimsmælikvarða. Hljómsveitarstjóri og einsöngvari Barbara Hannigan Einleikari og einsöngvari Lucie Horsch

Se på Harpas webbplats →

Datum

Lördag 28 Nov

Tid

14:00

Venue

Harpa

Pris

6.400 kr

Lägg till i kalender

Dela

Få nästa veckas tips i Reykjavík