
Nýja Tríó Reykjavíkur, skipað píanóleikaranum Liam Kaplan, fiðluleikaranum Herdísi Mjöll Guðmundsdóttur og sellóleikaranum Geirþrúði Önnu Guðmundsdóttur, býður upp á fallega hádegistónleika á Menningarnótt þar sem það flytur valda kafla úr Dumky píanótríói Dvořák í bland við nýjar útsetningar eftir Liam Kaplan á ástsælum íslenskum sönglögum svo sem Hríslan og lækurinn og Nú andar suðrið sæla. Tónleikarnir eru um 30 mínútna langir. Nýja Tríó Reykjavíkur var stofnað árið 2025 og hlaut strax afar jákvæða dóma fyrir „ótrúlega samhæfni“ og „dýnamískan og ljóðrænan flutning“ (Morgunblaðið). Hópurinn er nefndur í höfuðið á Tríói Reykjavíkur og er markmið nýskipaðs tríós að halda uppi þeirri merkile