
Spönn er ný og fersk kollektíva stofnuð af tveimur tónlistarkonum sem vilja spanna bilið milli hefðar og nýsköpunar í klassískri tónlist. Að Spönn standa Kristín Ýr Jónsdóttir, flautuleikari og Þórhildur Magnúsdóttir, víóluleikari. Fyrsta tónleikaröð Spannar samanstendur af þrennum tónleikum sem allir tengjast flautuleikaranum Manuelu Wiesler og áhrifum hennar á íslenskt tónlistarlíf. Þessir aðrir tónleikar raðarinnar, undir yfirskriftinni Glitspor, eru tileinkaðir tríóverkum fyrir flautu, víólu og hörpu. Að þessu sinni fá Kristín Ýr og Þórhildur til liðs við sig hörpuleikarann Gunnhildi Einarsdóttur. Á efnisskránni verða m.a. hin rómaða Sónata fyrir flautu, víólu og hörpu eftir Claude Debus