
Hip-hop
GKR -10 ára
GKR - 10 ára 10 ár eru liðin frá því að GKR gaf út plötuna „GKR“ í formi morgunkornspakka í Kjötborg og því ber að fagna! Tónleikarnir sem fara fram í Iðnó munu líkt og allt sem GKR gerir, vera einstök upplifun. Þann 10. október fyllir GKR Iðnó ásamt vel völdum gestum. Þetta eru fyrstu miðasölutónleikar GKR á Íslandi í 9 ár og einstakt tækifæri til að taka á móti honum á heimavelli. Hann er loksins fluttur heim eftir 5 ára dvöl í Noregi og getur ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað lært hefur. GKR ættu allir íslenskir tónlistarunnendur að þekkja en hann kom fram á sjónarsviðið árið 2015 með laginu sínu "Morgunmatur". Í dag er hann einn fremsti rappari landsins, þekktur fyrir rafmagnaða sviðsf