
Teater
GDRN og Magnús Jóhann Jólatónleikar á Þorláksmessu
Tvíeykið knáa GDRN og Magnús Jóhann hafa komið víða við í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár. Hljómplötur þeirra, Tíu íslensk sönglög (2022) og Nokkur jólaleg lög (2024) hafa notið mikilla vinsælda og sú fyrrnefnda varð nýverið að platínuplötu. Síðastliðin tvö ár hafa jólatónleikar þeirra slegið í gegn og í ár ætla þau að tjalda öllu til á Þorláksmessu í Háskólabíói. Þar mun fögur rödd GDRN blandast mjúkum píanóleik Magnúsar og hátíðarandinn svífa yfir vötnum. Ekki missa af friðsælu andartaki rétt áður en jólin ganga í garð. Miðasalan er á tix.is og hefst 2. október kl 10:00. GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hva