Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Fólk
Teater

Fólk

Hvað gerist þegar aldagamlar rímur mæta popptónlist? Í FÓLK sameinar Milkywhale kraft kórsöngs, raftónlistar og dans í sviðsupplifun þar sem íslenskur kvæðaarfur fær nýtt líf. Gamlar vísur umbreytast í takta, söng og hreyfingu og fortíðin mætir nútímanum í sameiginlegri hátíð um fólk, röddina og samfélagið. Poppdúettinn Milkywhale er skipuð Árna Rúnar Hlöðverssyni (FM Belfast) tónlistarmanni og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur dansara og söngkonu. Milkywhale hefur verið lýst sem „skál af skittles, toppaðri með sjöföldum expressó blandað saman við gleðina sem fylgir því að fá nýjan hvolp og trampólín að morgni jóladags“. Hljómsveitin hefur getið sér gott orð sem danshljómsveit og hefur meðal annars komið fram á Hróarskeldu, Reeperbahn og fjölda annarra tónlistarhátíða. Nú stígur Milkywhale á svið ásamt kvæðakór í nýju tónleikaverki.

Höfundur: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir Leikstjóri: Andrea Elín Vilhjálmsdóttir Kvæðaráðgjafi: Bjarni Karlsson Tónlist og hljóðmynd: Árni Rúnar Hlöðversson Leikmynd og búningar: Sigríður Ágústa Finnbogadóttir Flytjandi: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir (Milkywhale) ásamt Kvæðakór Lýsing og Hljóðmynd: Kristín Waage Framleiðsla og framkvæmdastjórn: Milk & Kleina Kvæðakór: Antonía Bergþórsdóttir Ásdís Hanna Gunnhildar Guðnadóttir Berta Andrea Snædal Björn Loki Björnsson Dagur Sölvi Halldórsson Edda Karólína Ævarsdóttir Elsa Jónsdóttir Freyja Stígsdóttir Josie Anne Gatens Kjartan Almar Kárason Óðal Hjarn Rafn Ágúst Ragnarsson Rebekka Levin Telma Huld Jóhannesdóttir Véný Skúladóttir Verkið er styrkt af Sviðslistasjóði

Se på Tjarnarbíós webbplats →

Datum

Söndag 29 Nov

Tid

20:00

Pris

3.900–6.900 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík