
TeaterKlassiskt
Falstaff - Óperan
Fyrsta stóra uppfærsla hinnar nýju Óperu verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd. „Þá var ég grannur, þá var allt í blóma. Þetta var áður en ég kynntist rjóma.“ Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjó