
Söngvaskáldið Lyon Hansen, þungarokkhljómsveitin Tunghoyrt og Dania O. Tausen ásamt Bartal Augustinussen koma fram í veglegri tónlistardagskrá í Kaldalóni á Menningarnótt. Dagskráin er í samstarfi við Sendiskrifstofu Færeyja á Íslandi sem hefur um árabil staðið fyrir fjölbreyttu tónleikahaldi á Menningarnótt í Hörpu þar sem margir af helstu tónlistarmönnum Færeyja hafa komið fram. 16:00 – 16:30 Lyon Hansen Lyon Hansen hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð færeyskra þjóðlagatónlistarmanna. Hann hefur sent frá sér breiðskífurnar Lyon (2015) og Skull-Sized Kingdom (2025) auk nokkurra smáskífa. Lyon Hansen hefur hlotið mikið lof fyrir einlæga texta, næmar lagasmíðar og hljóðheim sem