Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Eva stjórnar Bruckner 5 - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Klassiskt

Eva stjórnar Bruckner 5 - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóníur Antons Bruckner hafa hrifið áheyrendur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í gegnum tíðina. Fimmta sinfónía Antons Bruckner er þar engin undantekning, en þessi tilkomumikla sinfónía skipar nokkuð sérstakan sess í höfundarverki Bruckners. Hún er frekar innhverft verk, hefst á hægum inngangi en þegar á líður rís hún upp í stórkostlegt samspil tóna og lita og nær hápunkti í glæsilegum lokaþættinum. Tónlist íslensk-þýska tónskáldsins Steingríms Rohloff hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum og verk hans verið flutt víða um heim. Síðustu ár hefur hann einbeitt sér að einleikskonsertum fyrir einleikara í fremstu röð. Á þessum tónleikum fáum við að heyra Íslandsfrumflutning á konsert fyrir horn og hljómsveit sem saminn var að undirlagi Stefans Dohr, leiðara horndeildar Fílharmóníuhljómsveitar Berlínar. Konsertinn var frumfluttur í maí á síðasta ári í Álaborg og hlaut frábærar móttökur áheyrenda og gagnrýnendur töluðu um „meistaraverk sem á eftir heyrast aftur og aftur“. Hljómsveitarstjóri tónleikanna er Eva Ollikainen, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá 2020 til 2026.

Hljómsveitarstjóri Eva Ollikainen

Einleikari Stefan Dohr

Efnisskrá Steingrímur Rohloff Hornkonsert Anton Bruckner Sinfónía nr. 5

Se på Harpas webbplats →

Datum

Torsdag 15 Apr

Tid

19:30

Venue

Harpa

Pris

3.100 - 11.500 kr

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík