
TeaterRock
Elly Vilhjálms, stórtónleikar milli jóla og nýárs
Henný Eldey Vilhjálmsdóttir, sem þjóðin þekkti sem Elly Vilhjálms, skildi eftir sig einstakan tónlistararf. Rödd hennar lifir enn og lögin sem hún söng eru fyrir löngu orðin hluti af þjóðarsál Íslendinga. Vesturport kynnir stórtónleika til heiðurs þessari dáðu söngkonu í Eldborgarsal Hörpu þann 27. desember kl. 16:00 og 20:00. Tónleikarnir voru fyrst fluttir árið 2025 á 90. afmælisári Ellyar og seldust þá upp á örskömmum tíma. Nú gefst kostur á að upplifa tónlist Ellyar á ný, í endurbættri og aukinni dagskrá og enn veglegri uppsetningu. Söngkonan Katrín Halldóra flytur helstu perlur úr söngferli Ellyar ásamt góðum gestum og stórhljómsveit Guðmundar Óskars Guðmundssonar en Hjörtur Ingvi Jóh