
Teater
Ekki hugmynd — Litla sviðEkki
Ekki hugmynd Frumsýning: 30. janúar Litla svið Jæja hvað ætlarðu svo að verða? Ekki hugmynd. Hvað skuldarðu mikið í skatt? Ekki hugmynd. Hvað á leikritið að heita? Ekki hugmynd. Það er skelfileg stund í lífi hvers manns þegar tilveran hættir að vera hellað djamm og hótel mamma og verður virðisauki, viðbótarlífeyrissparnaður og almennur viðbjóður. Snögglega breytist lífið í eitt stórt skyndipróf: Heimsreisa eða háskólapróf? Smokkur eða snudda? Lán eða lífsvilji? Ekki hugmynd er bráðfyndið gamanleikrit þar sem mannabörnin Arnór, Óli og Vigdís eru öll týnd á tímamótum og hafa ekki hugmynd um hvað þau eiga að gera. En með gríni, mis-heimspekilegum kenningum, söng og öllum tiltækum leikhústrixum