Einar um jólin 2026
Hinir árlegu jólatónleikar - Einar um jólin - eru nú loksins haldnir opinberlega. Gestgjafi er Einar Örn Jónsson sem þekktur er sem hljómborðsleikari Í svörtum fötum og höfundur jólalagsins Jólin eru að koma. Með Einari á sviðinu verður fjöldi listafólks, stórhljómsveit og söngvarar. Sérstakir gestir kvöldsins eru Sigga Beinteins, Dagur Sigurðsson og Diljá Péturs og þá er einnig von á fjölmörgum leynigestum. Tryggðu þér miða á þessa einstöku jólatónleika þar sem gleðin og glaumurinn ráða ríkjum. Nánari upplýsingar: www.facebook.com/einarumjolin www.instagram.com/einar.um.jolin