
Klassiskt
Dvořák, Dvořák - Sígildir sunnudagar
Fyrstu tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur starfsárið 2026-2027 eru helgaðir tónlist Antonín Dvořáks. Hann er eitt ástsælasta tónskáld Tékklands fyrr og síðar. Kammersveitin leikur á tónleikunum tvö af þekktustu kammerverkum Dvořáks; strengjasextettinn í A-dúr op. 48 og Serenöðu í d-moll fyrir blásara, selló og kontrabassa op. 44, en bæði þessi verk eru samin árið 1978. Um svipað leyti samdi hann hina Slavnesku dansa sem síðar slógu í gegn og gerðu Dvořák að heimsfrægu tónskáldi nánast á augabragði. Kammersveit Reykjavíkur var stofnuð 1974 í því augnamiði að gefa áheyrendum kost á reglulegum tónleikum með kammertónlist og um leið hljóðfæraleikurunum tækifæri til að glíma við áhugaverð verk