
Klassiskt
Dúó Sandur á tónleikum í Hannesarholti 22. október 2026
Á þessum tónleikum kemur fram Dúó Sandur. Dúo Sand skipa frændsystkynin Einar Bjartur Egilsson píanóleikari og sópransöngkonan Gerður Bolladóttir. Á undanförnum árum hafa þau komið fram víðsvegar um landið og flutt fjölbreytta tónlist en þó aðallega eigin tónsmíðar. Einar og Gerður eiga bæði ættir að rekja til Sands í Aðaldal og munu að því tilefni flytja nær eingöngu frumsamin lög við ljóð forfeðra sinna, ljóðskáldanna frá Sandi í Aðaldal. Ljóðskáldin sem um ræðir eru systkinin Þórunn Friðjónsdóttir, Sigurjón Friðjónsson og Guðmundur Friðjónsson og síðan Heiðrekur Guðmundsson, Bolli Gústavsson og Gerður Bolladóttir. Þess má geta að Guðmundur Friðjónsson var langafi Einars Bjarts og Þórunn F