
Klassiskt
Dúó í aldarfjórðung – Guðrún Jóhanna og Francisco Javier – Sígildir sunnudagar
Hjónin Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari fagna með tónleikum í Norðurljósum aldarfjórðungi sem dúó. Gestalistamenn á tónleikunum eru Pétur Jónasson gítarleikari, Eyjólfur Eyjólfsson söngvari, flautu- og langspilsleikari og börn Guðrúnar og Javiers, þau Eva Jáuregui og Leó Guðrúnarson Jáuregui. Tónlistarmennirnir flytja lög og ljóð sem eru Guðrúnu og Javier sérstaklega kær og þau hafa flutt á tónleikum víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku. Þar má heyra útsetningar Javiers á þjóðlögum og sönglögum frá Íslandi, Írlandi, Bandaríkjunum, Spáni miðalda og Suður-Ameríku. Þau flytja einnig lög eftir sig sjálf, Hauk Tómasson og Huga Guðmundsson s