
Teater
Djöflar
Frank stendur með tvo plastpoka í anddyri glæsiíbúðar sinnar og Katarínu. Í öðrum pokanum eru nýir skór, í hinum öskuker móður hans, sem á að jarðsetja daginn eftir. Von er á bróður Franks og mágkonu, en þau afboða komu sína. Til að létta þrúgandi stemninguna, bjóða hjónin nágrönnum sínum í heimsókn. Við tekur drykkja og usli, sem opna gömul sár og leysa úr læðingi bældar langanir. Úr verður ógleymanleg erfidrykkja, með óljósum leikreglum, svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Í hlutverkum Franks og Katarínu eru Hilmir Snær Guðnason og Vala Kristín Eiríksdóttir en nágranna þeirra leika þau Haraldur Ari Stefánsson og Íris Tanja Flygenring. Höfundur: Lars Norén Þýðing: Hlín Agnarsdóttir