
David Byrne í Eldborg TÓNLEIKARNIR HAFA VERIÐ FÆRÐIR Í ELDBORG, HÖRPU. ALLIR MIÐAHAFAR HAFA FENGIÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR Í TÖLVUPÓSTI. Fjórum áratugum eftir að David Byrne breytti landslagi popptónlistar heldur hann áfram að koma á óvart. Þann 29. júlí stígur hann á svið í Eldborg, þar sem salurinn skapar einstaka umgjörð fyrir tónleikana og gefur áhorfendum tækifæri til að upplifa einn áhrifamesta listamann samtímans í návígi. Sem forsprakki Talking Heads skapaði Byrne ógleymanleg lög á borð við Psycho Killer, Once in a Lifetime, This Must Be the Place (Naive Melody) og Burning Down the House. Síðan þá hefur hann byggt upp glæsilegan sólóferil sem hefur skilað honum Grammy-, Oscar- og Golden G