
Experimentellt
Darlingarnir
Darlingarnir Taka Clapton og kó á íslensku Hannesarholt Sunnudag, 11. október klukkan 16. Daringarnir eru miklir íslenskumenn svo þeir drifu sig í það gustungaverk að snara nokkrum lögum Claptons, Bítlanna, The Eagles og fleiri á okkar ylhýru. Ekki nóg með það heldur hafa mörg lögin verið staðfærð, þá aðallega á Bíldudal, þannig að Penny Lane verður að Vegamótum og My Michelle verður að Sirrý litlu. Ekki má svo gleyma verbúðinni á Dalbraut þar sem ýmislegt gerðist einsog sagt er frá í laginu sem The Eagles gerði frægt undir nafninu Hotel California. Einnig bregða þeir fyrir sig suður-amerískum söng, í anda Buena Vista Social Club, enda ekki annað hægt þegar sagt er frá hinum víðfræða B