
Hér kemur tónlistin til okkar úr djúpinu en tvö heillandi tónverk eftir Jean Sibelius ramma inn tónleikana. Í upphafi rísa úr hafi Ránardætur í samnefndu tónaljóði finnska tónskáldsins. Þar dregur Sibelius upp listilega mynd af leik gyðjanna og hafinu, þessu mikla afli sem eina stundina virðist alsaklaust en rýkur upp þá næstu með ógnarafli. Undir lok tónleikanna hljómar hin stórkostlega sjöunda sinfónía tónskáldsins sem er, eins og tónaljóðið, aðeins í einum kafla. Sinfónían þykir bera frumleika tónskáldsins fagurt vitni og er af mörgum talin eitt af stórkostlegustu tónverkum Sibeliusar. Sænska ungstirnið Johan Dalene leikur einleik í áhrifamiklum fiðlukonserti eftir Thomas Adès. Stjarna ha