
Nýr staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands, píanóleikarinn Bertrand Chamayou og sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn, Barbara Hannigan, verða í brennidepli á þessum fjölbreyttu tónleikum sem óneitanlega hafa sterkt franskt yfirbragð. Chamayou leikur tvö tónverk eftir samlanda sína frá Frakklandi sem eiga það sameiginlegt að búa yfir einstökum litbrigðum. Söngur framandi fugla Ameríku og Asíu varð Olivier Messiaen að innblæstri í litskrúðugu verki fyrir píanó, blásara og slagverk á meðan Ravel hugsaði fyrst og fremst um að skrifa léttan og skemmtilegan píanókonsert þar sem einleikarinn fengi að glansa. Tónskáldið sótti þar innblástur í þjóðtónlist forfeðra sinna í Baskalandi og töfr