
CELINE DION NOSTALGIA í Norðurljósum fimmtudaginn 19. nóvember Celine Dion er ein áhrifamesta söngkona samtímans og rödd hennar hefur snert hjörtu milljóna fólks um allan heim. Celine Dion er miklu meira en bara söngkona; hún er afl sem breytti ásýnd popptónlistar að eilífu! Með ótrúlegt raddsvið og tæknilega fullkomnun að vopni, kenndi hún heiminum hvað það þýðir að syngja af hreinni ástríðu auk þess sem hún ruddi brautina fyrir kraftmiklar dívur nútímans og sýndi að tónlist getur brúað öll tungumálabil, enda hafa plötur hennar selst í um 250 milljón eintökum á heimsvísu. Celine hafði mótandi áhrif á tónlistarbransann með því að sameina klassískan glæsileika og nútímalegt popp. Hún gerði st