
Boney M. og Herbert Guðmundsson saman á jólatónleikum í Hörpu Tvær goðsagnir munu sameinast á jólatónleikum í Hörpu - hin goðsagnakennda diskó hljómsveit Boney M. ásamt upprunalegu söngkonunni, Liz Mitchell, sem kemur fram ásamt stórhljómsveit sinni sem er afar sjaldgæft, og einn ástsælasta söngvari Íslands, Herbert Guðmundsson. Boney M. mótaði alþjóðlegu tónlistarsenuna á áttunda og níunda áratugnum, með sínu einstaka blandi af diskó-, reggí- og popptónlist, og er hún á meðal farsælustu diskó hljómsveita sögunnar. Með yfir 150 milljónir seldar plötur, smelli sem hafa slegið í gegn um allan heim og hljóm sem hafði áhrif á heilu kynslóðirnar, lyfti hljómsveitin diskó tónlist á nýjar hæðir og