
Rock
Blóðbönd | Svala Björgvins og Krummi
Blóðbönd er nýjasta tónleikaröð Salarins þar sem einstaklingar tengdir blóðböndum stíga saman á svið. Ólíkar stefnur, ólíkar kynslóðir - sameiginleg rót. Hér eru á ferðinni einlægir tónleikar sem snúast um samspil, fjölskyldubönd og tónlist sem verður aðeins til á milli þeirra sem eiga sameiginlegan hljóðheim. Sum lög fylgja manni í gegnum lífið. Önnur verða hluti af fjölskyldunni. Á tónleikunum Blóðbönd í Salnum í Kópavogi koma systkinin Krummi Björgvinsson og Svala Björgvinsdóttir saman á sviði í fyrsta sinn í þessu samhengi og deila með áhorfendum tónlist sem tengir þau sterkum böndum við föður þeirra, Björgvin Halldórsson, sem lést fyrr á árinu. Flutt verða lög eftir Krumma og Svölu, ása