Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
Baby Rave RDF | Fjölskyldudagskrá Hörpu
KlubbkvällKlassisktElektronisktFri entré

Baby Rave RDF | Fjölskyldudagskrá Hörpu

Baby Rave (fyrir allan aldur)

Staður: Hörpuhorn í Hörpu Dagsetning: Laugardagur 14. nóvember Tími: Kl. 14:00 Aldur: Allur aldur Aðgangur: Ókeypis og engin skráning nauðsynleg Í samstarfi við: Reykjavík Dance Festival

Dans, tónlist og samvera fyrir alla fjölskylduna!

Baby Rave er dansviðburður fyrir börn á öllum aldri og fjölskyldur þeirra þar sem allir eru velkomnir. Börnin kynnast danstónlist frá ýmsum heimshornum og með hjálp ímyndunaraflsins ferðast þátttakendur um heiminn á dansgólfinu.

Markmiðið er að skapa öruggt og opið rými þar sem börn og fullorðnir geta dansað, leikið sér og átt góða stund saman – hvert á sinn hátt. Um leið er sáð fræjum fordómaleysis og lögð áhersla á frelsi, fjölbreytileika og gleði.

Komdu með fjölskylduna og slepptu þér á dansgólfinu í skemmtilegu og vingjarnlegu rave-i fyrir allar kynslóðir!

Se på Harpas webbplats →

Datum

Lördag 14 Nov

Tid

14:00

Venue

Harpa

Pris

0 kr

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík