
Barbara Hannigan, nýr aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stýrir einstökum upphafstónleikum starfsársins þar sem tími og rúm renna saman. Tónleikarnir bera yfirskriftina Attacca!, en það hugtak er notað í tónlist þegar kaflar eða tónverk eru flutt án þess að hlé sé gert á milli þeirra. Kvöldið hefst á áhrifamikilli tónlist fyrir slagverk og málmblásara eftir bandaríska tónskáldið Charles Ives sem leiðir okkur inn í frumflutning á tónverkinu Undark eftir nýtt staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Huga Guðmundsson. Þá fáum við að upplifa saman þekktustu þögn tónlistarsögunnar í 4 mínútur og 33 sekúndur. Þetta umtalaða listaverk er eftir hinn tilra