
Klassiskt
ÁST – ástarsaga sögð af kór
ÁST er nýtt íslenskt kórverk sem tekst á við ástina í öllum sínum myndum. Fjölskyldubönd, áföll, erfðir, hinseginleiki og allar hliðar ástarinnar, speglaðar í þekktum dægurlögum. VOX Rangárþing er fjölmenningarlegur kór. Kórfélagar koma frá fleiri en tíu löndum. Hvert og eitt hefur ólíkan bakgrunn, menningu og reynsluheim. Í ÁST eru raunverulegar og sannar sögur kórsins settar á svið. Kórfélagar segja sínar eigin sögur og sögur hvers annars. Tónlistin styður og sameinar flytjendur og áhorfendur. Leikstjórn: Gábor Tengely Tónlistarstjóri og Kórstjóri: Arilíus Marselínuson Tónlistarráðgjafi: Sandra Rún Jónsdóttir Listrænn stjórnandi: Harpa Rún Kristjánsdóttir Flytjendur: VOX Rangárþing