
Arnheiður syngur Mahler - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Arnheiður Eiríksdóttir, messósópran, hefur skotist upp á stjörnuhimininn á síðustu árum og hlaut m.a. Alþjóðlegu óperuverðlaunin sem rísandi stjarna ársins 2024. Hér flytur hún okkur nokkur af fegurstu sönglögum Gustavs Mahler: Söngva förusveinsins, sem fjallar um ástir og sorgir förusveinsins og hið áhrifamikla Urlicht, eða Frumljós úr sinfóníu nr. 2, þar sem lýst er þránni eftir lausn frá veraldlegum þjáningum. Á síðari hluta tónleikanna stjórnar Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hinni gullfallegu sinfóníu nr. 1 eftir Johannes Brahms, en það tók tónskáldið yfir 20 ár að ljúka við hana. Biðin eftir verkinu margborgaði sig þar sem sinfónían er einn af hornsteinum rómantískra tónbókmennta.
Hljómsveitarstjóri Tomáš Hanus
Einsöngvari Arnheiður Eiríksdóttir
Efnisskrá Antonín Dvořák Karnival forleikur Gustav Mahler Söngvar förusveinsins Gustav Mahler Urlicht úr sinfóníu nr. 2 Johannes Brahms Sinfónía nr. 1