
Teater
Áramótasprengja Þjóðmála
Áramótasprengja Þjóðmála 2026 Hinir grunuðu Nú sprengjum við árið upp með hvelli. Þessir menn vita hvað gerðist á árinu sem senn er liðið. Kvöldið fyrir gamlárs leysa þeir frá skjóðunni í Borgarleikhúsinu. Þar mun margt koma í ljós sem engan hefði grunað. Þjóðmál gera upp liðna atburði, leggja mat á frammistöðu stjórnmálamanna og forystumanna atvinnulífsins og spyrja hvað bíði okkar árið 2027. Sem fyrr verður ekkert talað í kringum hlutina. Hreint ekki. Viðburðurinn verður ekki sendur út og eina leiðin til að fá sannleikann beint í æð er að mæta. Við hlökkum til að sjá þig. Og við vitum að þú hlakkar til að sjá okkur.